1. 1. Farðu í dagatalið, smelltu á réttan dag og svo á leikinn.

2. Veldu liðið þitt með því að smella á heima eða úti eftir því hvort á við.

3. Smelltu hér.

4. Núna birtist listi yfir alla mögulega leikmenn. Til að takmarka leikmannafjöldann sem birtist hér, er hægt að velja leikmenn á leikmannalista í mótaspjaldi. Þetta þarf að gera í vafra. Leiðbeiningar um það eru hér: https://knattspyrnusambandislands.zendesk.com/hc/is-is/articles/42954455662228-Að-gera-leikmannalista-fyrir-mót

5. Veldu leikmenn í byrjunarliðið með því að ýta á græna plúsinn. Taka þarf fram hver er markvörður (GK) og hver er fyrirliði (CP). Smelltu svo á hakið til að færa leikmenn í byrjunarliðið.

6. Smelltu hér til að skoða þá sem þú hefur valið, og til að bæta við varamannabekk og þjálfarateymi.

7. Smelltu hér til að bæta við bekknum og þjálfurum. Aðferðin við að bæta við leikmönnum á varamannabekk er sú sama og fyrir byrjunarlið, taka þarf fram hverjir eru markmenn.
Nú sýnum við hvernig á að bæta við þjálfara.

8. Smelltu á græna plúsinn.

9. Veldu úr listanum eða leitaðu að þjálfara.

10. Smelltu á græna plúsinn til að bæta þjálfaranum við.

11. Hægt er að bæta fleiri hlutverkum við með því að smella hér.

12. Smelltu hér til að fara til baka.

13. Smelltu á 'Set to CONFIRMED' (Staðfesta) þegar þú ert tilbúin/n að staðfesta alla einstaklinga á skýrslu og skila inn. Skila þarf inn skýrslu í seinasta lagi 60 mínútum fyrir leik.
Athugið að ekki er hægt að breyta leikmönnum og þjálfarateymi á skýrslu eftir að búið er að staðfesta. Ef þörf er á að gera breytingu, t.d. ef leikmaður meiðist í upphitun, þarf að tilkynna dómara um það, þeir hafa aðgang til að gera breytingu eftir staðfestingu.

Athugasemdir
0 comments
Ekki er hægt að skrifa athugasemdir við grein.