1. Farðu í dagatalið, smelltu á réttan dag og svo á leikinn.

2. VARÚÐ: Við lok leiks, ekki merkja leikinn strax sem spilaðan (set to played) áður en búið er að færa inn og fara yfir alla leikatburði, úrslit, osfv.
Ef þetta er gert vistast leikskýrslan sem endanleg og einungis starfsmenn KSÍ geta uppfært stöðu og leikatburði.
3. Leikatburðir eru færðir inn fyrir eitt lið í einu. Þau eru valin hér.

4. Veljið leikmann til að setja inn atburð fyrir.

5. Í þessu tilfelli var mark skorað. Hægt er að velja mark, víti eða sjálfsmark.

6. Smellið á reitinn undir 'Mínúta'.

7. Setjið inn tíma og smellið á hakið.

8. Einnig er hægt að bæta við þeim sem átti stoðsendingu ef við á.

9. Næst færum við inn spjald, leikmaður er valinn úr listanum og smellt á gult eða rautt spjald.

10. Tími er færður inn (eins og í skrefi 6) og ástæða spjalds valin. (Valmöguleikarnir á myndinni verða uppfærðir í samræmi við agareglur KSÍ)

11. Hægt er að færa inn lýsingu á brotinu.

12. Næst færum við inn skiptingu. Smellið á leikmanninn sem á að koma inná af bekknum.

13. Veljið skiptingu.

14. Færið inn tíma og smellið á hakið.

15. ATH. Mikilvægt er að taka fram ef skiptingar fóru fram í hálfleik þar sem Comet telur hversu oft hvert lið hefur nýtt sín tækifæri til að gera breytingu á meðan leiktíma stendur.

16. Veljið leikmanninn sem kemur af velli.

17. Þjálfarateymi osfv er skráð fyrir neðan bekkinn. Hægt er að smella á einstakling þar til að færa inn spjald ef þörf er á.

18. Smellið hér til að bæta við framlengingu og vítaspyrnukeppni.

19. Eftir að leikatburðir hafa verið færðir inn koma þeir sjálfkrafa fram í úrslitum. Hér fyrir neðan er markið sem var fært inn áðan komið inn í stöðuna.
Ef ekki hafa verið færðir inn leikatburðir af einhverjum ástæðum og lagfæra þarf stöðuna er smellt á stöðuna hægra megin og hún slegin inn. Hér er átt við stöðuna samtals eftir hvern leikfasa.
Athugið að einnig er hægt að setja inn atburði í rauntíma fyrir Comet live, þar sem hægt verður að fylgjast með úrslitum í rauntíma. Þá þarf að smella á hnappinn til að byrja leik um leið og leikur hefst til að setja klukkuna í gang. Atburðir settir inn í rauntíma eru mínútumerktir eftir leikklukkunni. Dómari fer yfir atburði og tímasetningar í lok leiks til staðfestingar.

20. Að lokum þegar búið er að setja inn atburði fyrir bæði lið og yfirfara allt er smellt hér (ekki á punktana þrjá).

21. Smellið á hakið og skýrslan er send inn.

22. Ef fresta þarf leik er smellt á punktana þrjá.

Athugasemdir
0 comments
Ekki er hægt að skrifa athugasemdir við grein.